Stóðhestar
Svartálfur frá Syðri-Gegnishólum
Afkvæmi Álfakletts eru í rúmu meðallagi að stærð. Þau eru fríð á höfuð og með afar fínlegan og reistan háls, breitt og vöðvað bak og öfluga lend en yfirlínan í hálsi og baki mætti oft vera sterkari. Þau eru sérstaklega léttbyggð, með góða fótahæð og sívalan bol en brjóstbreidd mætti stundum vera meiri. Fætur eru grannir en þurrir og fótstaðan er góð, hófarnir eru efnistraustir og með hvelfdan botn og prúðleiki er í tæpu meðallagi. Þau afkvæmi sem mætt hafa til dóms eru ung að árum en sýna prýðilega fjölhæfni í reið. Töltið er takthreint með góðri skreflengd og jafnvægisgott á hægu en mætti vera lyftingarmeira, brokkið er takthreint og skrefmikið en ekki rúmt. Vekurðin í mörgum afkvæmanna er afar efnileg. Stökkið er rúmt og með góðri skreflengd á ferðinni en oft burðarlítið á hægri ferð, fetið er takthreint með prýðilegri skreflengd. Álfaklettur gefur léttbyggð og fínleg hross sem eru samstarfsfús með trausta lund og þau fara vel í reið og hlýtur Álfaklettur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og fyrsta sætið.
Dómar og umsögn
Keppnisþátttaka, afkvæmasaga og upplýsingar frá þjálfun
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus, luctus nec ullamcorper mattis, pulvinar dapibus leo.